519 6770
Borgartún 27, 105 Reykjavík

Ráðum 2

Ráðum ehf. er dótturfyrirtæki Expectus og sérhæfir sig í ráðningum og mannauðsráðgjöf. Fyrirtækið hóf starfsemi í mars árið 2012 og í apríl 2014 sameinuðu Ráðum og Expectus krafta sína í þeim tilgangi að bjóða viðskiptavinum fyrirtækjanna beggja öflugri þjónustu til árangurs. Bæði fyrirtækin hafa það eitt að markmiði að skapa virði með viðskiptavinum sínum.

Við komum fram af heilindum við umsækjendur og höfum hag viðskiptavinarins að leiðarljósi.

Við leitumst eftir því að koma á langtíma samstarfi við viðskiptavini okkar og sérstaða okkar liggur í sveigjanlegri nálgun á ráðningarverkefnið. Þannig höfum við komið til móts við þarfir stærri fyrirtækja með því að sjá um hluta ráðningarferilsins, t.d. bakgrunnskannanir, hæfnismat eða starfsæfingar. Krafan um faglegar ráðningar er alltaf að verða háværari því fyrirtæki og stofnanir eru búin að átta sig á kostnaðinum sem fylgir óvandaðri ráðningu. Ekki er óalgengt að kostnaðurinn nemi a.m.k. árslaunum viðkomandi starfsmanns, oft fast að tveimur árslaunum.

Vefsíða Ráðum

expectus-radum2